1)   Hver setti fyrstur fram “virkniröð” málma sem seinna fékk nafnið spennuröð? Volta
 - Og hver ályktaði um “dýrarafmagn”? Galvani

2)   Hvað er átt við með saltbrú? Bls 106-107

3)   Hvers vegna er stál ekki natriumhúðað? Margar ástæður. Na hvarfast heiftarlega við vatn og því myndi ryðvörnin eyðast við minnsta raka. Í öðru lagi myndast vetnisgas sem myndi valda sprengihættu

4)   Hvað er vetnislosandi málmur? Málmur sem hvarfast við saltsýru við stofuhita. Málmurinn oxast en vetnið afoxast og LOSNAR úr sýrunni

5)   Hvernig er hægt að leysa upp kopar? Með saltpétursýru En gull? Kóngavatni aqua regia, sjá bók

6)   Skoðið samband Mg og Sn í galvanihlöðu.

a)   Hvort efnið oxast auðveldar samkv. Spennuröð Mg til vinsti og oxast því auðveldar

b)   Í hlaðskema, hvort efnið væri mínuspólinn? Mg því það gæfi rafeindir

c)   Teiknið hlaðskema fyrir galvanihlöðuna

-                             +

 │Mg  │Mg2+││Sn2+│Sn│

d)   Hvaða frumefni er að oxast? Mg

e)   Hvaða frumefni er að afoxast?Sn

f)    Hvaða frumefni er oxari?Sn

g)   Hvaða frumefni er afoxari?Mg

h)   Ritið hálfhvörf hlöðunnar

Mg  à Mg2+  + 2 e-  +2,37V

2 e-  +  Sn2+   à Sn  -0,14 V

i)     Ritið heildarhvarf hlöðunnar
Mg + Sn2+  
à Mg2+ +  Sn

j)     Hvaða spennu gefur þessi hlaða? (án álags, miðað við 1,0M styrk lausna) 2,23 Volt sbr. Bls 120

k)   Teiknið hlöðu í líkingu við bls. 110 mynd 4.14

4.Hvaða atóm eru oxarar og afoxarar hér að neðan.

Fe

+

Cu2+

->

Fe2+

+

Cu

 

 

 

 

 

 

 

Fe er afoxari og Cu2+ er oxarinn hér

5. Er líklegt að Pb stafur hvarfist við lausn með Zn2+ jónum?  - en við lausn með Cu2+ jónum?  Pb hvarfast ekki við sinkjónir því þær eru vinstra megin  við Pb í spennuröðinni en Pb hvarfast við kopar(II)jónir því kopar er hægra megin. Pb myndi semsagt afoxa Cu2+

6. Gefnir eru 3 málmar A,B,C. Málmar B & C leysast í saltsýru. Málmur B afoxar C2+ í  C.  Raðið þeim í röð eftir hvarfgirni (spennuröð)?  A er lengst til hægri eða mesti eðallinn.  B afoxar C2+ jónir svo B er lengst til vinstri og B er því “ryðvörnin” fyrir hina.

B – C - A

 

8. Hvað er oxun?

Brottnám eða missir rafeinda

 

9. Hvað er átt við þegar sagt er að lífræn efni brenna?

Þegar lífræn efni hvarfast við súrefni andrúmsloftsins eða þegar kolefnisatóm lífrænna efna oxast og súrefnisatómin afoxast.

 

 

10. Lýsið með efnajöfnu þegar Magnium leysist upp í saltsýru (HCl)

Mg(s) + 2HCl(aq)  à  MgCl2(aq) + H2(g) 

Þar sem magnium oxast og vetnið afoxast

 

 

12. Er hægt að nota Magnium sem vörn fyrir Zink? Ástæða svars?

Já þar sem það er vinstra megin við zink í spennuröð málma

 

13. Hvað gerist þegar Magnium er dýft ofan í Ag+ lausn?

Magníum missir rafeindir og leysist upp en Ag+ tekur til sín rafeindir og fellur út á Magnium sem Ag eða hreint silfur. Ástæðan er sú að Mg er vinstra megin við Ag í spennuröðinni og silfurjónin virkar sem oxari.

 

14. Hvað gerist þegar Fe er sett ofan í Zn2+ lausn?

Ekki neitt þar sem Fe er hægra megin við zink og gefur því ekki rafeindir.

15. Hver er oxunartala C í CH4 ?

Mínus Fjórir (IV)

16. Hver er oxunartala S í SO42-

+ VI

6 – 8 = -2

17. Í efnahvarfinu:  MgO     +      Si         ®      Mg  +      SiO2

 

Hvaða atóm oxast?               Si þar sem oxunartalan hækkar

 

Hvaða atóm er oxarinn?                Það sem afoxast þ.e. Mg

 

18. Þegar oxunartala lækkar þá er atóm að Afoxast

 

- og er þess vegna Oxarinn

 

19. í hvarfinu Fe2O3    +     C ®         Fe  +      CO2

Fe var +3 en verður 0

O hefur ox.t. -2 fyrir og eftir

C hefur 0 fyrir en +4 hægra megin

Þá er Fe  að afoxast

 

Hvaða atóm er afoxarinn? C því oxunartalan er að hækka

 

20. a) Hver er oxunartala P fyrir og eftir efnahvarf í hvarfinu:

2 PH3 (g) + 3,5 O2 (g) à 2 PO2 (g) + 3 H2O (g)

                Fyrir ___-3______                   Eftir ___+4_____

b) Hver er oxunartala  N í          ____+5____

c) Í efnahvarfinu  Cr3+  +  H2O2  à  CrO4-   +  H2O   hvaða frumefni er oxarinn? _____Súrefni___

og hvaða frumefni oxast ________Króm______

Ath. Að í H2O2 þá er oxunartala súrefnis -1 en ekki -2 eins og venja er. Súrefnið verður -2 í mynefnunum.

Cr3+ hefur +3 vinstra megin en verður +7 hægra megin og oxast þ.a.l..

21. Magníummálmur hvarfast við Cu2+ jónir.

a) skrifið hálfhvörfin            b) skrifið heildarhvarfið

Mgà Mg2+ +  2e-

Cu2+  + 2e- à Cu

b) Mg(s) + Cu2+(aq) à Mg2+(aq)  +  Cu(s)

c) hvaða atóm oxast, afoxast – og eru oxari og afoxari?

Mg oxast og er afoxari. Koparjóninn afoxast og er því oxari.

d) Teiknið Hlaðskema fyrir hlöðu Magniums og koparjóna.

   -                                           +

Mg(s) │ Mg2+(aq)││  Cu2+(aq) │ Cu(s)

 

e) Hvaða frumefni eru plús og mínuspólar í hlöðunni.

f) Reiknið staðalspennu fyrir heildarhvarfið.

Mg er að oxast og snýst við sbr.töfluna bls. 120 og formerkið á spennunni líka svo þetta verður 0,34 V + 2,37V  =  2,71V

 

22. Hvort hvarfið er sjálfgengt? Ag+ + Cu à Cu+ + Ag eða Cu+ + Agà Cu  + Ag+

Fyrra hvarfið þar sem Ag er til hægri við Cu í spennuröð málma.