Heilir og sælir fjarnemar

Mín sannfæring er sú að fjarnámið eigi að vera vera sveigjanlegt og m.a. ætlað nemendum sem ekki komast í venjulegan skóla með góðu móti -eða hafi mismunandi annríki og aðstæður.

Í ljósi þess eru öll verkefni og kennslubréf á heimasíðu áfangans í fjarkennslu. Til aðhalds sendi ég svo alltaf tölvupóst einu sinni í viku.

Ef þið dragist afturúr vegna annríkis eða veikinda vil fá skilaboð um það í tölvupósti hið fyrsta. Ef þið á hinn bóginn þurfið t.d. að fara til útlanda eða í vinnutörn þá getið þið lokið 1-3 verkefnum og sent mér og tekið ykkur viku frí svo dæmi sé tekið. Þið megið og svara mér hvenær sem ykkur hentar í vikunni, það þarf ekki að skila á þriðjudögum. Ég reyni alltaf að svara samdægurs eða eins fljótt og ég get en sumir dagar er verri en aðrir og takið tillit til þess.

Ég hef ekki sett áfangana inn á WebCT núna og ætla ekki að gera það þessa önn en það er mjög vinsælt um þessar mundir og hafa verkefnin aðeins opin t.d. í viku tíma. Slíkt er kennaravænt en ekki endilega nemendavænt. Það er ekki í mínum anda og hef því allt opið.  Það er líka gott er kemur að upprifjun fyrir próf.

Gangi ykkur vel – Benedikt