Nafn kennara:

Benedikt Barðarson og

Elín Björk Unnarsdóttir

Sk.stöfun:

BEN

EBU

Um áfangalýsingu vísast í námskrá en hana má einnig finna á http://www.vma.is/namid/ eða í Gæðahandbók. Um vikudaga og tímasetningu innan hverrar viku vísast til stundatöflu sem afhendist í byrjun annar.

 

Vika

Námsefni (bóklegur hluti)

Verkefni

35 - 36

1. kafli. Mælistærðir og eðlismassi.

Dæmi í lok  kafla 1

 

37 – 40

4. kafli.  Eðlisfræði.

 Hreyfing, orka, kraftur, hröðun.

 

Dæmi í lok kafla 4.

Lokapróf úr kafla 4.

41 – 42

5. kafli - Vatn og orka

Dæmi í lok kafla 5.

Tímaverkefni.

43 – 44

 6. og 7. kafli - Andrúmsloftið.  Ýmsir orkugjafar. 

 

Flutningur á verkefni

45

2. kafli. Saga  frumefna og þróun atómkenningarinnar.

 

Verkefni í lok kafla 2

 

45-48

 3. kafli. Efnafræði.

 Samsetning efnis, atóm, sameindir, jónir, mól.  

 

Dæmi í lok kafla 3.

Lokapróf úr kafla 3.

Athugið: Með vikunúmer er átt við vikur ársins eins og á dagatalinu í INNU.

 

Tegund

Námsgögn (nafn bókar og nánari lýsing á gögnum)

Bækur

Eðlis- og Efnafræði.  Orka og Umhverfi eftir Rúnar S. Þorvaldsson.

 

 

 

Annað

Lýsing

Hópvinna

Nemendur vinna tveir og tveir saman og flytja fyrirlestur úr kafla 6 eða 7.

 


 

Námsmat

Lýsing

Vægi

Kafli 1 og 4

Eðlisfræðiverkefni eðlisfræðipróf

5%

Kafli 1 og 4

Eðlisfræðipróf

30%

Kafli 5

Tímaverkefni

10%

Kafli 6 og 7

Fyrirlestur

10%

Kafli 2

Tímaverkefni

5%

Kafli 3

Efnafræðiverkefni

5%

Kafli 3

Efnafræðipróf

30%

Annað

Kennaraeinkunn

5%

 

 

Athugið að ekki er lokapróf í annarlok.

Með fyrirvara um breytingar

BEN og EBU

 

Yfirmarkmið: Að kynna nemendum grunnatriði eðlis- og efnafræði með áherslu á orku í daglegu lífi.

Markmið:

Þekki til orkunotkunar á heimilum, þekki helstu forskeyti og tugveldi.

þekki þróun atómkenningarinnar og gerð efna en í því felst að:

geta rakið hvernig hugmyndir manna um atómið hafa þróast, geta útskýrt á hverju lotukerfið byggist, þekkja hvernig frumefnatáknin eru til komin og skilja formúlur og nöfn einfaldra efnasambanda, vita hvernig atóm mynda sameindir og hvernig jónir myndast, þekki helstu flokka lotukerfisins, þekkja hugtökin efnahvarf og efnajafna og geta lesið úr og skrifað einfaldar efnajöfnur. Kynna nemendum hugtakið mól reiknað mólmassa og breytt grömmum í mól og öfugt.

Kunni skil á eiginleikum(þ.m.t. helstu atriðum veðurs) og samsetningu andrúmsloftsins  og mengun frá brennslu. Kunni skil á hreyfingu hluta eftir beinni línu en í því felst að: vita hvaða samband er á milli hreyfiorku bíls og hraða, hvernig hemlunarvegalengd er háð hraðanum, geta útskýrt, mælt og reiknað meðalhraða, stundarhraða og hröðun fyrir hluti sem hreyfast eftir beinni línu, geta gert gröf yfir færslu, hraða og hröðun sem fall af tíma og vita hvaða samband er á milli grafanna, geta leyst einföld dæmi um hreyfingu hlutar sem hreyfist með jafnri hröðun. Þekki til kjarnorkuvinnslu, vatnsaflsvirkjanna, jarðvarmaorkuframleiðslu, vetnisframleiðslu,

sólarrafhlaða, efnarafala og loftmengun.