Það hefur vafist fyrir mörgum að finna breidd
og lengd staðar með einnar mínútu nákvæmni.
Málið er að ef maður ætlar að segja til um staðsetningu
upp á mínútu þarf að bregða reglustiku á
kortið og mæla, annars er hætt við að það
skeiki a.m.k. um eina mínútu.
Ef þú mælir bilið milli samliggjandi bauga (20´
á milli eða 30´á milli, misjafnt eftir kortum) getur
þú fundið út hvað hver millimeter svarar til í
mínútum. Síðan getur þú mælt frá
öðrum baugnum í staðinn og þannig fundið út
mínútufjöldann.
Benda má á að hægt er að skipta bilinu milli tveggja bauga í t.d. 20 minni bil ef mínútufjöldinn milli samliggjandi bauga er 20 mín. Þá eru bara dregin 19 stutt strik með jöfnu millibili langs eftir einhverjum lengdarbaugnum, milli samliggjandi breiddarbauga þannig að bilin verði 20. Þetta er hins vegar dálítið mikið bras þannig að ég reikna ekki með að margir nenni að standa í því.
Hér fyrir neðan er sýnt hvernig breidd og
lengd Hvammstanga, Viðeyjar og Flateyrar er fundin með því
að mæla með reglustiku og einföldum hlutfallsreikningum.
Sem einfalt dæmi mætti nefna að ef 12 mm væru milli tveggja
strika og punktur milli strikana væri 3 mm frá öðru strikinu
þá er sá punktur 3/12 af vegalengdinni milli strikanna.
Ef svo milli strikana væru 20 bogamínútur þá
væri punkturinn 3/12 sinnum 20 eða = 5 mín frá striki.
Hlutfallsreikningarnir eru sem sé allir í þessum dúr
og ef þú átt kortabók grunnskóla frá
1992 eða 1996 getur þú fylgt dæmi um Hvammstanga. Ef
þú átt hins vegar kortabókina frá 2002 getur
þú fylgt dæminu um Viðey og Flateyri.
Hnattstaða Hvammstanga (allar mældar vegalengdir (í mm) miðast við 1. og 2. útgáfu af kortabók handa grunnskólum þ.e. útgáfurnar frá 1992 og 1996.)
Segjum t.d. að við ætlum að finna hnattstöðu
Hvammstanga með nákvæmni upp á eina mínútu.
Þú mælir bara með reglustiku frá næsta baug
á kortinu og í Hvammstanga, síðan mælir þú
með reglustikunni bilið milli bauganna en þá ertu komin(n)
með hlutfall sem þú margfaldar svo með mínútufjöldann
milli bauganna*. Bætir svo við þeim mínútufjölda
eða dregur frá eftir því í hvað átt
þú hefur mælt. Í kortabók handa grunnskólum
frá 1996 (eða 1992) finnum við Hvammstanga á bls. 9. Ef
mælt er frá 65°20´N baugnum og til norðurs í
Hvammstanga fást 12 mm en milli bauganna eru 57 mm. Mínútufjöldinn
er því = 4,2´ 4´ (milli bauga eru 20 mín.)
Breidd staðarins er því 65°24´N
Á svipaðan hátt finnum við lengd staðarins: ef mælt er frá 20°30´V baugnum og til vesturs í Hvammstanga fást 32 mm en milli bauganna eru 36 mm.
Mínútufjöldinn er því ´= 26,7 27´ (milli bauga eru 30 mín.)
Lengd staðarins er því 20°57´V
Hnattstaða Hvammstanga er því: 65°24´N og 20°57´V
(* Það eru 60 mínútur í einni gráðu en mínúta er táknuð með kommu uppi og aftan við mínútufjöldann.)
Hnattstaða Viðeyjar
Það er óheppilegt að sýna hvernig mæld er hnattstaða Reykjavíkur af því að hún spannar yfir svo stórt svæði. Þess vegna vel ég að sýna mælingu og útreikning á því hvernig hnattstaða Viðeyjar er fundin - lítill svartur, ferkantaður kassi/depill (bls. 8 í kortabókinni frá 2002)
Frá 64°00'N baugnum og að 64°20'N baugnum
eru 74mm
Frá 64°00'N baugnum og í svarta depilinn eru 35 mm
Frá 64°00'N baugnum eru því (35/74)*20' = 9,46' = 9'
í svarta depilinn.
Breidd staðarins er því 64°09'N
Frá 21°30'V baugnum og að 22°00'N baugnum
eru 48 mm
Frá 21°30'V baugnum og í svarta depilinn eru 35 mm
Frá 21°30'V baugnum eru því (35/48)*30' = 21,87' = 22'
í svarta depilinn.
Lengd staðarins er því 21°52'V
Hnattstaða kirkjunnar í Viðey með einnar mínútu nákvæmni er því:
64°09'N og 21°52'V
Hnattstaða Flateyrar
Kortabók frá 2002 notuð
Bilið frá 66°00'N til 66°20'N er 75mm en
upp í Flateyri eru ca 12mm
Við fáum því (12/75)*20' = 3,2' = 3'
Breidd Flateyrar er því 66°03'N
Bilið frá 23°30'V til 24°00'V er 45mm en
vestur í miðja Flateyri eru ca 2,5mm
Við fáum því (2,5/45)*30' = 1,67' = 2'
Lengd Flateyrar er því 23°32'V
Hnattstaða Flateyrar samkvæmt grunnskólakortinu frá 2002 er því:
66°03'N og 23°32'V
Þetta er lesið svona:
66 gráður og 3 mínútur norður og 23 gráður
og 32 mínútur vestur